Á 2. fundi Öldungaráðs Fallabyggðar sem fram fór 30. ágúst var lögð fram til kynningar dagskrá dagdvalar og dagþjónustu/félagsstarfs aldraðra í Fjallabyggð fyrir veturinn 2019 – 2020.

Dagskráin verður með svipuðu sniði og í fyrra. Hádegismatur verður á boðstólum tvisvar sinnum í viku í Húsi eldri borgara á Ólafsfirði, á þriðjudögum og föstudögum.

Sundleikfimi verður á Ólafsfirði á miðvikudögum kl. 13:30 og föstudögum kl. 10:45. Á Siglufirði verður sundleikfimin kl. 9:00 á mánudögum og kl. 10 á miðvikudögum.

Mikillar óánægju gætir með tímasetningu á sundleikfimi beggja vegna og viðkomandi aðilar hvattir til að skoða aðrar útfærslur.

Einnig lýti öldungaráð yfir vonbrigðum sínum með tímasetningu fyrir íþróttir eldri borgara í íþróttahúsinu á Ólafsfirði.