Í dag um klukkan 14:00 var Lögreglunni á Norðurlandi eystra tilkynnt um slys úti á Eyjafirði, á móts við Hjalteyri og komu upplýsingar um að verið væri að flytja slasaðan einstakling í land eftir köfunarslys.

Lögregla og slökkvilið voru strax boðuð út og einnig björgunarsveitir. Varðskipið Týr var einnig skammt frá er slysið varð og fór það einnig til aðstoðar.

Einn maður var fluttur á sjúkrahúsið á Akureyri en hann var síðan úrskurðaður látinn. Lögregla, björgunarsveitir og landhelgisgæslan eru ennþá við vinnu á vettvangi og úti á Eyjafirði. Sú vinna er meðal annars endurheimt á búnaði sem maðurinn var með.

Áfallateymi Rauða Krossins var kallað út til aðstoðar fyrir samferðafólk mannsins. Ekki eru veittar frekari upplýsingar að svo stöddu en rannsókn málsins er á frumstigi.

Mynd: Logreglan á Norðurlandi eystra