Menntun og mönnun í heilbrigðisþjónustunni, staða rannsókna og vísindastarfs og forysta til árangurs.

Þetta verða viðfangsefni fundar sem heilbrigðisráðherra boðar til 5. september nk. Markmiðið er að fjalla um þessar mikilvægu stoðir heilbrigðiskerfisins í ljósi nýrrar heilbrigðisstefnu til ársins 2030. Fundurinn verður haldinn í Veröld, húsi Vigdísar kl. 17. – 19.

Umræðustjórar verða Ævar Kjartansson og Magnús Karl Magnússon sem fá til sín  í sófaspjall marga góða gesti með víðtæka þekkingu og reynslu á þessum sviðum. Fundarstjóri verður Björg Magnúsdóttir.

Streymt verður beint frá fundinum og verður útsendingin aðgengileg á vef heilbrigðisráðuneytisins www.hrn.is

Sjá nánar dagskrá fundarins á stjornarradid.is