Í næstu viku, 17. – 21. Janúar 2022, ætlar Lögreglan á Norðurlandi eystra að hafa eftirlit með umferð er varðar aðbúnað og öryggi yngstu barna í bílum.

Lögreglan verður sýnileg við alla leikskóla í umdæminu, allt frá Siglufirði um Eyjafjörð, Þingeyjarsýslur til Þórshafnar og Bakkafjarðar.

Á facebooksíðu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra segir. “Við reynum að hafa tal af sem flestum ökumönnum og kanna staðsetningu barna í bílum og öryggisbúnað sem notaður er. Við erum öll meðvituð um Covid-19 og sinnum við okkar löggæsluaðferðum í samræmi við það.

Við vonum að þessi mál séu í þokkalegu standi, en ef einhversstaðar þarf að hafa hlutina í 100% standi, þá er það við þær aðstæður þegar börn eiga í hlut. Upplagt er fyrir alla að ræða þessi mál bæði í vinnunni og heima. Leiðbeina með lagfæringar og ræða þessi öryggismál við börnin sjálf. Gera úrbætur ef þörf er á og tryggja börnin með öruggum hætti í sætum bifreiðanna okkar”.