Húlladúllan býður til húlahringjagerðar-smiðju á Kaffi Klöru, fimmtudaginn 8. ágúst. Þátttakendur fá í hendurnar berrassaðan húlahring og Húlladúllan kennir ykkur að skreyta hringinn með flottu teipi. Efniskostnaður er 2.500 krónur. Það er nauðsynlegt að skrá þátttakendur í smiðjuna, smellið hér til að skrá: https://forms.gle/EL42PVyQkcgLbywPA

Þið eruð öll velkomin í smiðjuna, bæði lítil og stór. Athugið þó að það er æskilegt að ung börn mæti í fylgd eldri fjölskyldumeðlims eða vinar, sem getur aðstoðað þau við að teipa hringinn svo hann verði vel heppnaður.

Kaffi Klara mun hafa tilboð á veitingum.

Smiðjan hefst klukkan 13:00. Tekið er við greiðslu á staðnum í reiðufé eða í formi millifærslu.