Á dögunum var efnt til kosningar á milli 5 tillagna af slagorði fyrir Húnaþing vestra. Varð slagorðið Lifandi samfélag hlutskarpast og hefur sveitarstjórn samþykkt tillöguna.

Í tengslum við kosninguna var þátttakendum boðið að skrá netfang sitt og taka þátt í happadrætti. Dregið hefur verið úr pottinum og voru Pálína Fanney Skúladóttir og Hörður Gunnarsson dregin úr pottinum. Í vinning var 10 þús kr. gjafabréf á einhvern þeirra veitingastaði sem eru í Húnaþingi vestra. Þau völdu gjafabréf á Northwest í Víðigerði og hafa nú fengið vinninginn afhentan.

Íbúar kjósa um slagorð fyrir sveitarfélagið