Laust er til umsóknar starf sviðsstjóra fjölskyldusviðs
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Sveitarfélagið Húnaþing vestra óskar eftir að ráða metnaðarfullan einstakling í starf sviðsstjóra fjölskyldusviðs. Sviðsstjóri er yfirmaður fjölskyldusviðs og ber stjórnunarlega ábyrgð á málaflokkum sviðsins, þ.e. félagsþjónustu, fræðslumálum ásamt íþrótta- og tómstundamálum. Um er að ræða 100% starf í stjórnsýslu sveitarfélagsins sem heyrir undir sveitarstjóra. Sviðsstjóri ber ábyrgð gagnvart sveitarstjóra og sveitarstjórn í öllum störfum sínum og ákvörðunum.
Leitað er að dugmiklum einstaklingi með mikinn áhuga og reynslu af stjórnun og teymisstarfi ásamt þekkingu í að minnsta kosti einum af málaflokkum sviðsins. Viðkomandi þarf að búa yfir hæfni til að skipuleggja og virkja samstarfsmenn til samráðs og samvinnu um málefni fjölskyldunnar.
Helstu verkefni:
- Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri og mannauðsmálum sviðsins.
- Yfirstjórn þeirra málaflokka sem falla undir sviðið
- Ábyrgð á rekstri stofnana sem heyra undir sviðið.
- Gerð fjárhagsáætlana og eftirlit með fjárreiðum sviðsins ásamt ráðgjöf í starfsmannamálum.
- Situr fundi framkvæmdaráðs.
- Samstarf með fræðslu-, félags- og öldungaráði sveitarfélagsins.
- Ábyrgð á samræmingu og samhæfingu félagsþjónustu, skóla- og íþróttastarfs.
- Ábyrgð á stefnumörkun í málaflokkum sem falla undir sviðið.
- Tryggir heildstæða samhæfða þjónustu við fjölskyldur.
- Leiðir ytra og innra samstarf og samþættingu starfsemi sviðsins þvert á málaflokka.
- Ábyrgð á veitingu sérfræðiþjónustu innan sviðsins og tryggja tengingu hennar þvert á málaflokka.
- Frumkvæði að samskiptum og aðgerðum til að styrkja samfélagið.
Menntunar og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun kostur.
- Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu.
- Þekking og reynsla af fræðslu- og/eða félagsþjónustu sveitarfélaga.
- Haldgóð þekking og reynsla af rekstri, teymisvinnu, stjórnun og stefnumótun.
- Leiðtogahæfni, jákvæðni, þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Sjálfstæð vinnubrögð, fumkvæði og skipulagshæfni.
- Þekking á stefnumótandi áætlanagerð og gerð rekstrar-og fjárhagsáætlana.
- Þekking á helstu upplýsingakerfum.
- Þekking á undirbúningi og stjórnun funda.
- Góð íslenskukunnátta og hæfni til að setja fram mál í ræðu og riti.
Um Húnaþing vestra:
Húnaþing vestra er staðsett miðja vegu milli Akureyrar og Reykjavíkur. Hvammstangi er stærsti þéttbýliskjarni sveitarfélagsins með um 600 íbúa en heildarfjöldi íbúa er rúmlega 1.220.
Húnaþing vestra er fjölskylduvænt samfélag með hátt þjónustustig, metnaðarfullt leik-, grunn- og tónlistarskólastarf ásamt því að rekin er dreifnámsdeild frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á staðnum. Gott framboð er af íþrótta- og tómstundastarfi. Sveitarfélagið er útvistarparadís, með góða sundlaug, íþróttahús og fjölbreytt félagsstarf. Blómlegt menningarlíf er til staðar. Hjá sveitarfélaginu starfa um 120 manns.
Nánari upplýsingar má finna á www.hunathing.is.
Umsóknarfrestur er til og með 9. mars 2022. Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Launakjör taka mið af kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Samkvæmt samþykktum um stjórn sveitarfélagsins ræður sveitarstjórn sviðsstjóra. Samkvæmt jafnréttisstefnu Húnaþings vestra eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar veitir Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511 1225.
Sótt er um starfið gegnum heimasíðu Intellecta.
Mynd: hunathing.is