Að gefnu tilefni vill Húnaþing vestra benda á að lausaganga hunda í þéttbýli er bönnuð.

Borið hefur á lausagöngu hunda og því að hundaeigendur hirði ekki upp eftir hunda sína þegar þeir gera stykki sín á opnum svæðum sveitarfélagsins, einkalóðum,  útivistarsvæðum og gönguleiðum sem þar eru.

Hundaskítur getur borið smit á milli hunda og er afar óþrifalegur og hvimleiður fyrir íbúa og gesti sveitarfélagsins. 

Við viljum vinsamlega biðla til hundaeigenda að virða reglur um hundahald.

 Sjá reglur um hundahald