Fasteignamiðlun kynnir eignina Hvanneyrarbraut 61, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 213-0563 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Hvanneyrarbraut 61 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0563, birt stærð 145.4 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur arndis@fasteignamidlun.is.

Sjá myndir: HÉR

Um er að ræða einbýlishús á tveimur hæðum með stórum garði. Eignin skiptist í efri hæð sem samanstendur af forstofu, eldhúsi, stofu, svefnherbergi, fataherbergi og salerni og neðri hæð sem samanstendur af þremur svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi og forstofu. Timburstigi liggur niður á neðri hæð. Málverk af síldarstúlkum við síldarstörf er á rúnuðum vegg í stofu eftir Ragnar Pál sem málað var árið 1956. Búið er að skipta út flestum hluta af gluggum eignarinnar með viðhaldsfríum gluggum með þreföldu gleri og til eru tveir gluggar sem fara í svefnherbergi og baðherbergi neðri hæðar en á eftir að setja þá í. Einnig er búið að endurnýja allt rafmagn á efri hæð eignarinnar. Nýtt vatns inntak var tekið inn árið 2023 og skipt um vatnslagnir í eldhúsi og á ofnum. Þakið var málað árið 2022.

Forstofa: er bæði á efri og neðri hæð eignarinnar. Á efri hæð er flísalagt með fatahengi og glugga. Á neðri hæð er dúkalagt. 
Eldhús: hefur verið endurnýjað með hvítum Ikea innréttingum og grárri borðplötu. Hitalagnir eru í gólfi sem hafa þó ekki verið tengdar. 
Stofa: er mjög rúmgóð með góðu gluggaplássi og því miklu útsýni. Parket er á gólfi. 
Svefnherbergi efri hæð: er inn af stofu aflokað með vængjahurð og með fataherbergi inn af. Svalahurð er á herbergi en búið er að fjarlægja svalirnar sjálfar. Parket er á gólfi. 
Salerni efri hæð: er með viðarinnréttingu, vask og gólftengdu klósetti. Flísar eru á gólfi og dúkur á vegg. Aðgangur er upp á háaloft og rafmagnstafla inn í skáp. 
Svefnherbergi neðri hæð: eru þrjú með parket á gólfi. Eitt herbergjanna er með rúmgóðum fataskápum. 
Baðherbergi neðri hæð: er með panel á veggjum og dúk á gólfi. Baðkar er með sturtuaðstöðu, vaskur og nýlegt gólftengt klósett.
Þvottahús/geymsla: er niðurgrafið með steyptu gólfi og glugga með opnanlegu fagi. Mikið geymslupláss er í þvottarými. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,4% – 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Fasteignamiðlun ehf. – Grandagarður 5 – 101 Reykjavík – Arndís Erla Jónsdóttir löggiltur fasteignasali í Fjallabyggð

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.