Matvælastofnun minnir dýraeigendur á að huga að dýrum sínum í óveðrinu.
Kattaeigendur eru hvattir til að halda heimilisköttum inni þangað til óveðrið gengur yfir.
Færa þarf dýr á örugg svæði ef einhver hætta er á að þau geti hrakist undan óveðrinu fram af klettum eða í ár, vötn, sjó eða aðra hættu. Gæta þarf sérstaklega að því að fjarlægja eða festa alla lausa hluti í kringum dýrin, því fljúgandi hlutir geta bæði valdið ofsahræðslu og beinum skaða.
Mjög varasamt er að flytja hestakerrur í miklu hvassviðri.
Um leið og veður lægir og talið er óhætt að vera á ferli eru dýraeigendur hvattir til að huga eins fljótt og auðið er að dýrum sínum.
Texti og forsíðumynd: mast.is