Matvælastofnun varar neytendur með ofnæmi eða óþol fyrir hveiti við Vegan lasagna frá PreppUp sem Mealprep ehf. framleiðir. Ofnæmisvaldurinn hveiti er ekki tilgreindur í innihaldslýsingu vörunnar. Fyrirtækið innkallar vöruna af markaði með aðstoð Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Kópavogs.
Um er að ræða innköllun á öllum lotum og framleiðsludagsetningum:
- Vörumerki: PreppUp
- Vöruheiti: Vegan lasagna
- Framleiðandi: Mealprep ehf.
- Lotunúmer/best fyrir dagsetning: Allar lotur/dagsetningar
- Dreifing: Hagkaup, Nettó, Iceland, Heimkaup, Krambúðin og Kjörbúðin um allt land
Varan er skaðlaus þeim sem ekki eru með ofnæmi eða óþol fyrir hveiti. Viðskipavinir með ofnæmi/óþol skulu ekki neyta vörunnar og farga/skila gegn endurgreiðslu til:
Mealprep ehf. (PreppUp)
Hlíðarsmára 8
201 Kópavogi
Ítarefni
- Fréttatilkynning Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Kópavogs
- Leiðbeiningar Matvælastofnunar um merkingu á ofnæmis- og óþolsvöldum
- Þessum upplýsingum átt þú rétt á – upplýsingaspjald Matvælastofnunar um merkingar matvæla
- Listi Matvælastofnunar yfir innkallanir
- Neytendavakt Matvælastofnunar á Facebook