Hver er eðlilegur blóðþrýstingur og púls?
Fjallað er um púls í svari Ulriku Andersson við spurningunni Hvað er hvíldarpúls og hvað getur hann orðið hægur? og er lesendum bent á að kynna sér það svar. Svarið hér á eftir fjallar því eingöngu um blóðþrýsting.Á sama hátt og lögmál Ohms segir okkur að rafspenna sé margfeldið af rafstraum og viðnámi, er blóðþrýstingurinn margfeldið af því blóðmagni sem hjartað dælir á tímaeiningu og viðnámi æðakerfisins.Þegar hjartað dregst saman og dælir blóði út í ósæðina, meginslagæð líkamans, hækkar þrýstingurinn í slagæðunum og nær hámarki við lok hjartasamdráttarins; þetta eru efri mörk blóðþrýstingsins. Á meðan hjartað hvílist milli samdrátta rennur blóðið út eftir slagæðakerfinu. Við það lækkar slagæðaþrýstingurinn og nær lágmarki rétt áður en hjartað dregst saman næst; þetta eru neðri mörk blóðþrýstingsins.
Blóðþrýstingur er því ávallt gefinn upp sem tvær tölur, efri mörk og neðri mörk, og einingin sem enn er notuð er mm Hg (millimetrar kvikasilfurs).
Eðlilegt er að efri mörk blóðþrýstings séu undir 130 og neðri mörk undir 85. Ef efri mörkin eru 140 eða yfir eða ef neðri mörkin eru 90 eða þar yfir er talað um að viðkomandi sé með háan blóðþrýsting, öðru nafni háþrýsting.
Hár blóðþrýstingur er í raun ekki sjúkdómur heldur sjúkdómseinkenni en um sjúkdóminn sem veldur þessu er ekki mikið vitað. Vitað er að erfðir skipta miklu máli, barn sem á báða foreldra með háþrýsting er til dæmis í verulegri hættu að fá sjúkdóminn. Ýmsir umhverfisþættir skipta líka máli, til dæmis hækka offita, reykingar og mikil áfengisneysla blóðþrýstinginn. Háþrýstingur er algengur, í Evrópu og Norður-Ameríku fá 10-20% fólks þennan sjúkdóm. Flestir fá sjúkdóminn á aldrinum 25 til 55 ára og hann er sjaldgæfur fyrir tvítugt.
Heimild: Vísindavefurinn
Forsíðumynd: Kristín Sigurjónsdóttir