Spaghetti Cacio E Pepe með klettasalati og sítrónu – uppskrift fyrir 4

  • Maldon salt
  • 340 g spaghetti (ósoðið)
  • 120 g beikon, skorið smátt
  • ¼ bolli  extra-virgin ólífuolía
  • 3 msk fínhakkaður hvítlaukur (uþb 4 stór hvítlauksrif)
  • 1 tsk rauðar piparflögur
  • 2 tsk nýmalaður svartur pipar (ég mæli með að byrja á 1 tsk!)
  • ¼ bolli ferskur sítrónusafi
  • 1 ½ bolli ný rifinn parmesan ostur
  • 3 bollar klettasalat

Sjóðið spaghetti í stórum potti með vel söltu vatni eftir leiðbeiningum á pakkningu. Takið frá 1 bolla af vatninu sem spaghettíið var soðið í, áður en vatninu er hellt af soðnu spaghettíinu.

Á meðan spaghettíið sýður er beikonið steikt yfir miðlungsháum hita þar til það er orðið stökkt (tekur um 7-9 mínútur). Bætið ólífuolíu á pönnuna ásamt hvítlauk, rauðum piparflögum og svörtum pipar og steikið í um 1 mínútu. Bætið sítrónusafa og spaghetti á pönnuna og hristið vel saman þannig að sósan dreifist um spaghettíið. Bætið parmesan ostinum saman við og blandið öllu vel saman, bætið spaghetti vatninu smátt og smátt út í þar til réttri áferð er náð. Bætið að lokum klettasalati saman við og blandið öllu vel saman í um 1 mínútu.

Smakkið til með rauðum piparflögum, salti og pipar. Berið fram með ferskum parmesan osti.


Uppskrift: 
Ljúfmeti og lekkerheit