29. – 31. maí 2020 – Leysingar.
Gjörningar, sýningar, ljóð, joga og tónleikar á vegum Alþýðuhússins á Siglufirði.

Kompan sýningaropnun 29. maí kl. 16.00 – Páll Haukur Björnsson Sýningin er opin daglega kl. 14.00 – 17.00 til 6. júní.

Gjörningadagskrá 29. maí kl.17.00 – 19.00 – Listhópurinn Kaktus.

Segull 67 sýningaropnun 30. maí kl. 14.00 – Ásdís Sif Gunnarsdóttir Sýningin er opin til 1. júní kl. 14.00 – 17.00

Tónleikar 30. maí kl. 17.00 – Davíð Þór Jónsson.
Ljóðalestur 30. maí kl. 18.05 – 18.20 – Sigurbjörg Þrastardóttir.
Tónlistaspuni 30. maí kl. 18.25 – Davíð Þór Jónsson, Þórir Hermann Óskarsson, Framfari og aðrir listamenn sem staddir eru í húsinu.

Tónleikar og Joga 31. maí kl. 14.00 – Kira Kira og Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir.
Gestir eru beðnir að koma með jogadýnu.

Einnig verður Örlygur Kristfinnsson með sýninguna Lundabúðin í Söluturninum Aðalgötu 23. Siglufirði. Opið 29. – 31. Maí kl 15.00 – 17.00.

Örlygur Kristfinnsson sýnir þar vatnslitamyndir um líf og dauða geirfuglsins. Örlygur stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1969-73, var myndlistarkennari í 20 ár og safnstjóri Síldarminjasafns Íslands önnur 20 ár.

Vegan Covid eru gestir vinsamlegast beðnir um að koma ekki á viðburðina ef þeir eru með einhver einkenni af vírusnum. Þeir sem koma eru beðnir um að spritta hendur við innganginn, ganga um í rólegheitumum. Fara að leiðbeiningum Aðalheiðar og fjölskyldu um staðsetningu og fjölda inní húsið og snerta ekki neitt innandyra nema þá helst stóla. Séð verður til þess að viðkvæmir fái sitt 2. Metra rými. Fólk er einnig beðið um að sýna þolinmæði og skilning þegar kemur að fjöldanum sem kemst að á viðburðina. Hugsanlega þarf að hleypa inn í hollum.
Við innganginn verður einnig karfa til að taka við frjálsum framlögum sem renna beint til listamannana.

Uppbyggingarsjóður/Eyþing, Fjallabyggð, Eyrarrósin, Aðalbakarí, Kjörbúðin, Rammi hf og Tannlæknar Fjallabyggð styðja við menningarstarf í Alþýðuhúsinu á Siglufirði.

Gjörningaform myndlistar á sér langa sögu og er mjög viðurkennt form á listsköpun. Þar koma saman ólíkar listgreinar og sameinast í einhvernskonar spuna eða fyrirfram gefnu flæði sem skilar sér í einstakri upplifun til áhorfandans.

Alþýðuhúsið hefur staðið fyrir Gjörningahátíð á Siglufirði í Fjallabyggð um Páska árlega síðan árið 2013 með þátttöku fjölda listamanna víðsvegar að úr heiminum í bland við heimamenn. Þar mætast ólíkir straumar og lífsviðhorf sem opna glugga í allar áttir og gefa þátttakendum tækifæri til að láta ljós sitt skína, kynnast öðru skapandi fólki og mynda tengs.

Á Páskum 2019 var svo bætt í upplifunina með tónlistadagskrá og í ár bætist við ljóðalestur og joga. Með þeirri viðbót gefst tækifæri til að kanna enn frekar tengsl tónlistar við myndlist, kvikmyndagerð, listdans, joga, ljóð og bókmenntir og hvernig listgreinarnar krossast og styðja hvor aðra. Mikil áhersla er lögð á að skapa grundvöll fyrir frjálsa sköpun og boða til leiks listamenn sem kunna að fara með það form.

Listamennirnir sem taka þátt í dagskránni eru:

Kompan – Páll Haukur Björnsson opnar sýningu sem ber yfirskriftina 2-late.

Páll Haukur býr og starfar í Reykjavík og segir þetta um verkin sín:
Ef ætti ég að velja eina hugmynd til að lýsa tilfinningum mínum gagnvart listsköpun, myndi ég fá hana að láni úr The Bell Jar eftir Sylviu Plath. Þar segir hún: “ef það er merki um hugsýki að girnast tvo ósamþættanlega hluti samtímis […] þá er ég fjandi hugsjúk.” Í mínum huga lýsa þessi orð fyrst og fremst hinu hugsjúka ástandi nútímasamfélagsins og stöðugri þörf okkar til að reyna að halda í marga andhverfa hluti á sama tíma. Ég reyni með list minni að færa mig frá nokkurri eiginlegri hugmynd um merkingu, leyfi verkinu að standa á gatnamótum þar sem allir andhverfir og annars ósamþættanlegir hlutir eru eitt–í andartak að minnsta kosti, rétt áður en ákvörðunin er tekin. Á þennan hátt reyna skúlptúrar mínir að vera myndir, málverkin gjörningar, og innsetningarnar teikningar. Hugsanlega er þetta tilraun til að forðast önnur þunglamalegri vandamál sem eiga það til að vera fólgin í miðlum sem slíkum.

Kaktus er sjálfstætt starfandi listahópur frá Akureyri, stofnaður árið 2015.

Í Kaktus eru nú 9 starfandi listamenn sem sjá um sýningarhald, opnanir og hina ýmsu viðburði í rými sínu, en Kaktusinn er nýfluttur á jarðhæð Ketilhússins í Listagilinu á Akureyri. Gilið var einmitt fæðingastaður Kaktuss og hvar hann hóf fyrst starfsemi sína og þar hafa meðlimir vinnustofur og gallerí. Auk þess að gegna sýningarhaldi fyrir aðra listamenn, starfar hópurinn sjálfstætt og sem heild að myndlist, tónlist og gjörningum. Á Gjörningahátíðinni Leysingar í Alþýðuhúsinu ætlar Kaktus að setja upp lítið gangvirki sem mun sjá um að næra gesti með kaffi og léttum veitingum. Í ljósi aðstæðna fer allt fram með fyllstu aðgát, svo framsetning og aðbúnaður verður ekki aðeins öruggur heldur einnig kúnstugt sjónarspil.
Þátttakendur eru Kaktusarnir:
Arnar Ari Lúðvíksson, Brák Jónsdóttir, Egill Logi Jónasson, Freyja Reynisdóttir og Karólína Baldvinsdóttir.

Segull 67 – Ásdís Sif Gunnarsdóttir setur upp video sýningu af völdum verkum allt frá
árinu 2000 í bland við nýleg verk.

Ásdís Sif Gunnarsdóttir býr og starfar í Reykjavík. Ásdís Sif stundaði nám við UCLA í Los
Angeles og við The School of Visual Arts í New York. Ásdís Sif sýnir jafnan í óhefðbundnum rýmum, til dæmis á netinu eða bíóhúsum. Vídeó innsetningar hennar eru draumkenndar, fela í sér þrívídd og texti spilar oft stórt hlutverk í hverju verki. Verk Ásdísar eru breytileg, allt frá stærri sýningum og vídeó innsetningum, til ljóðalesturs og ljósmyndasýninga. Þessi mynd er tekin af Daniel Leeb manninum hennar og er frá sýningunni “It ́s happening now” The Art Society, London.

Davíð Þór Jónsson flytur tónleika á föstudaginn um Hvítasunnuhelgina í Alþýðuhúsinu á Siglufirði. Einnig mun hann bjóða öðrum tónlistamönnum sem staddir eru í Alþýðuhúsinu upp í tónlistaspuna.

“Hvar finnur maður hina frjálsu tónlist? Eða finnur tónlistin mann sjálf?
Þetta er kannski eftir allt ekki undir neinum einum komið….það er einungis hægt að vaða af stað inní veðrið og láta svo öflin taka yfir , grípa ferðina og hugmyndir eins og þær koma….er kannski best að framkvæma allt þetta í svefni með undirmeðvitundina í stafni ?” DÞJ.

Davíð Þór stundaði nám í Tónlistarskóla FÍH og fór í skiptinám til Þrándheims á vegum skólans og útskrifaðist vorið 2001. Árið eftir gaf hann út sína fyrstu sólóplötu, Rask. Hann hefur gert tónlist og hljóðmyndir fyrir fjölda leiksýninga, Tengdó, Hrærivélina, söngleikinn Leg, Baðstofuna, Héra Hérason, Manntafl, Mýs og menn, Dagbók djasssöngvarans og síðast Húsið sem sett var upp í Þjóðleikhúsinu. Hann hefur einnig tónsett útvarpsleikrit og sjónvarpsverk af ýmsu tagi auk þess að semja tónlist fyrir dansverk.

Davíð Þór hefur frá unga aldri leikið með flestum þekktari tónlistarmönnum landsins. Hann hefur einnig unnið náið með sviðslistafólki og myndlistarmönnum og mætti þar helst nefna Ragnar Kjartansson, en saman sköpuðu þeir tónlistar- og myndbandsverkin „The End“, framlag Íslands á Feneyjartvíæringnum árið 2009 og „Guð“. Davíð samdi og útsetti tónlistina og flutti ásamt Ragnari og hljómsveit.

Davíð Þór hefur hlotið margvísleg verðlaun, til dæmis Íslensku tónlistarverðlaunin og Grímuverðlaunin, auk þess sem tónlist hans úr kvikmyndinni Hross í oss hefur verið verðlaunuð á kvikmyndahátíðum í Evrópu.

Sigurbjörg Þrastardóttir les úr eigin verkum.

Sigurbjörg er fædd 27. ágúst 1973 á Akranesi. Hún lauk B.A.-prófi í alm. bókmenntafræði frá
Háskóla Íslands 1997, auk prófs í hagnýtri fjölmiðlun.

Fyrsta ljóðabók Sigurbjargar, Blálogaland, kom út árið 1999. Ári síðar hlaut ljóðabókin Hnattflug góðan meðbyr og var t.a.m. valin besta ljóðabók vertíðarinnar af starfsfólki bókaverslana. Í bókinni er ferðast um borgir, götur, fjöll, höf og aðra raunverulega staði í myndrænum ljóðum. Ljóð úr þriðju bókinni, Túlípanafallhlífum, voru fljótlega þýdd á ýmis tungumál og birt í safnbókum og tímaritum. Sigurbjörg hefur komið fram á ljóðahátíðum í Evrópu og fjallað hefur verið um ljóðagerð hennar í króatísku, hollensku og frönsku bókmenntapressunni svo nokkuð sé nefnt. Ljóðsagan Blysfarir kom út á þýsku og sænsku í kjölfar tilnefningar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, og hlaut Fjöruverðlaunin hér heima.

Af leikverkum má nefna Þrjár Maríur (2004 á Litla sviði Borgarleikhússins), uppistandið Maður og kona: Egglos (Leikfélag Akureyrar, 2003) og leikgerð Gunnlaðar sögu eftir Svövu Jakobsdóttur (í Hafnarfjarðarleikhúsinu 2005).

Skáldsagan Sólar saga kom út haustið 2002 og fjallar um unga stúlku sem gengur í gegnum erfiða lífsreynslu á Ítalíu en finnur öryggið aftur á sérstæðan hátt. Fyrir handrit bókarinnar hlaut Sigurbjörg Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar. Nýjustu verkin eru ljóðabókin Hryggdýr (2018) og hinn nýfrumflutti ópus Klakabrennur II, í samstarfi við Ingibjörgu Ýri Skarphéðinsdóttur, tónskáld.

Þórir Hermann Óskarsson

Þórir Hermann lærði á píanó frá unga aldri ásamt klarínett og gítar, á Englandi þar sem hann ólst upp. Eftir að hann flutti til Íslands 16 ára gekk hann í FÍH og Tónlistarskólann í Reykjavík, þar sem hann útskrifaðist með Burtfararpróf í klassískum píanóleik og tónsmíðum. Þórir Hermann er að mestum hluta klassískt menntaður en þó sækir hann innblástur úr mörgum áttum, þar á meðal Jazz, Prógressívt Rock, Pop, Elektróník og Þjóðlagatónlist. Um þessar mundir stundar Þórir Hermann tónsmíðanám við Listaháskóla Íslands. Á tónleikunum í Alþýðuhúsinu mun Þórir flytja eigin verk á píanó í bland við verk Daníels Sigurðssonar sem leikur á trompet og í samstarfi við Snorra Skúlason sem leikur á kontrabassa.

Þórir tekur þátt í tónlistaspuna með Davíð Þór og fleirum á laugardaginn um Hvítasunnuhelgina.

Framfari

Framfari er sjálfmenntaður tónlistamaður sem hefur verið í hljómsveitabrölti frá unglingsárum, og tekið þátt í ýmsum tónlistaverkefnum, samspili og listviðburðum. Á undanförnum árum hefur hann einnig í auknum mæli snúið sér að tónsmíðum og tileinkað sér píanóleik til að koma þeim á framfæri. Framfari samdi tónlistina fyrir heimildarmyndina Af jörðu ertu komin sem frumsýnd var á sýðasta ári og hefur haldið fjölda tónleika undanfarið í samstarfi við tónlistamanninn Rafnar.

Framfari tekur þátt í tónlistaspuna með Davíð Þór og fleirum á laugardaginn um Hvítasunnuhelgina.

Kristín Björk Kristjánsdóttir

Kira Kira sprettur úr jarðvegi leikgleði og ununar á gjöfulu samstarfi í framsækinni tónlist, kvikmyndum og myndlist. Hún vinnur með spuna, á innsæinu og í græskulausri forvitni að margs konar skapandi rannsóknar leiðöngrum sem kraftbirtast ýmist í tónleikum, á hljómplötum, í hljóðinnsetningum, kvikmyndagerð eða í tónsmíðum fyrir kvikmyndir og sjónvarp. Kira Kira birtist Kristínu Björk Kristjánsdóttur í draumi sem listamannsnafn þegar hún bjó í Japan um það leyti sem hún stofnaði og leiddi tónlistarhreyfinguna Tilraunaeldhúsið (Kitchen Motors) ásamt Jóhanni Jóhannssyni og Hilmari Jenssyni. Hreyfingin var leikvöllur fyrir samruna listmiðla, útgáfa og hugmyndasmiðja sem framleiddi fjölbreytt verkefni og sýningar sem þau túruðu með út um allar jarðir. www.kirakira.is

Kira Kira: Ofurlúrileikar
Kira Kira speisar út angurværa teiknihugleiðslutónleika eftir hádegisverð í Alþýðuhúsinu á Hvítasunnudag. Gestir fá pappír og liti og býðst að hvíla hugann á meðan þeir sulla upp úr innsæinu teikningum með bundið fyrir augun á meðan tónlistin flæðir,
eða halla sér aftur og fá sér ofurlúr. Nú eða bæði: Sulla fyrst og blunda svo eða teikna í svefni, allt getur nú gerst.
Í fyrra gaf Kira út hugleiðsluplötuna Unu með friðsælum spuna og heimatilbúnum möntrum. Tónleikarnir í Alþýðuhúsin verða í anda Unu.
Kira syngur og leikur á orgel, hljóðsmala og ýmis alkemísk verkfæri.
Í lokin leikur Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir með Kiru á gong áður en hún tekur svo sjálf við með eigið sett.

Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir

Arnbjörg er Kundalini jógakennari, jógískur ráðgjafi, heilari, Bowentæknir og nemi í jógísku heilunarleiðinni Sat Nam Rasayan. Hún hefur einnig lært og starfar við grafíska hönnun og myndlist og gaf Salka út hennar fyrstu hugleiðslubók sem nefnist Hin Sanna Náttúra. Gongið og gítarinn eru iðulega hluti af jógakennslunni enda rík hljóðheilunar- og möntrutónlistarhefð í Kundalini jóga eftir forskrift Yogi Bhajan. Hún hefur starfað við náttúrulegar meðferðir til bættrar heilsu um árabil, kennt börnum í grunnskóla, fjölskyldujóga og hefðbundið Kundalini jóga í jógasal Ljósheima. Hún þróaði og hefur kennt jóga í vatni í nokkur ár ásamt því að kenna meðgöngujóga í vatni hjá Græna Lótusnum.
Á hvítasunnudag leggur hún áherslu á hægt og íhugult jógaflæði (slow flow) í bland við grunnstöður, pranayama og hugleiðslur.
Einnig spilar hún og kennir á gong. Hún hefur spilað fyrir almenning á ylströndinni í Nauthólsvík í nokkur ár auk þess sem hún spilar á margs konar viðburðum og með tónlistarfólki.


Aðsent.