Haldinn verður íbúafundur í Árskógi um málefni er snúa að laxeldi, mánudagskvöldið 22.október næstkomandi kl. 20:00 

Til umræðu verða umsóknir og hugmyndir sem fyrir liggja um eldi og vinnslu á laxi í landi sveitarfélagsins.

Kynnt verða áform fyrirtækja um uppbyggingu og starfsemi í sveitarfélaginu á sviði laxeldis. Þá verður leitað eftir huga íbúanna til laxeldis í sjókvíum í Eyjafirði.

Á fundinn mæta sveitarstjóri og kjörnir fulltrúar ásamt þeim sviðsstjórum sveitarfélagsins sem umsóknirnar snúa að.

Íbúar eru hvattir til að fjölmenna á fundinn.

 

Sveitarstjórinn í Dalvíkurbyggð
Mynd: pixabay