Fasteignamiðlun kynnir eignina Fossvegur 16, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 213-0202 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Fossvegur 16 neðri hæð er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0202, birt stærð 122,4 fm. Búið er að skipta upp eigninni í hæðir og því um séríbúðir á hæð að ræða. Unnið er að því að gera eignaskiptayfirlýsingu.  

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur arndis@fasteignamidlun.is.

Sjá myndir: HÉR

Um er að ræða neðri hæð í einbýlishúsi á frábærum stað með miklu útsýni og skjólgóðum suðurpalli. Eigninni hefur verið skipt upp í tvær sjálfstæðar íbúðir og er gengið niður á neðri hæð með norðurhlið eignarinnar niður timburstiga. 
Eignin samanstendur af rúmgóðu anddyri, eldhúsi, baðherbergi, þremur svefnherbergjum og stóru gluggalausu rými. Möguleiki er á að setja glugga í rýmið. Í eignina vantar gólfefni en gólfið hefur verið flotað í heild sinni fyrir utan baðherbergi og eldhús sem er flísalagt. Baðherbergi og eldhús var endurgert fyrir nokkrum árum. Vatnslagnir og frárennsli hefur verið endurnýjað. 
Gluggar á norðurhlið eru nýlegir en komin tími á lagfæringu á þeim gluggum sem snúa í austur. Ágætis garður er fyrir framan inngang eignarinnar og timbur pallur og timbur stigi niður með eigninni frá götu. Ljósleiðari hefur verið lagður inn í eignina. 

Anddyri: rúmgott með epoxy á gólfi. Inntak fyrir vatn er á vegg. 
Eldhús: hvítar innréttingar með efri og neðri skápum og grárri borðplötu. Flísar eru á gólfi. 
Svefnherbergi: eru þrjú misstór með góðu gluggarými. 
Baðherbergi: er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu klósetti og hvítri innréttingu. Sturtuklefi er flísalagður með hurð. Hiti er í gólfi. 
Geymsla/herbergi: er mjög rúmgóð með möguleika á að setja glugga í. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,4% – 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Fasteignamiðlun ehf. – Grandagarður 5 – 101 Reykjavík – Arndís Erla Jónsdóttir löggiltur fasteignasali

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Sjá myndir: HÉR