Fasteignamiðlun kynnir eignina Suðurgata 53, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 02-01, fastanúmer 213-0902 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Suðurgata 53 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0902, birt stærð 136.9 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur arndis@fasteignamidlun.is.

Sjá myndir: HÉR

Um er að ræða hæð í tvíbýli með sérinngang og timburpalli framan við eign. Mikið útsýni er úr eigninni yfir fjörðinn. Eignin samanstendur af anddyri, þvottahúsi, stofu, eldhúsi, baðhebergi, 3 svefnherbergjum og hálofti með miklum möguleikum. Einnig er yfirbyggð sólstofa þar sem áður voru svalir með gluggum og opnanlegum fögum. Gólfefni hefur að mestu leyti verið skipt út og sett fljótandi parket er yfir alla eignina fyrir utan votsými. Stigi er upp á háaloft sem er aflokað með hurð. 

Anddyri: er flísalagt með dökkum flísum og góðu fatahengi.
Þvottahús: er mjög rúmgott með dökkum flísum á gólfi og rúmgóðri innréttingu með plássi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Gluggi er í þvottahúsi með opnanlegu fagi. 
Stofa: er mjög rúmgóð og liggur í opnu rými með borðstofu. Mikið útsýni er úr stofu með góðu gluggaplássi. Parket er á gólfi.
Sólstofa: liggur út frá stofu með parket á gólfi og mjög góðu gluggaplássi. 
Eldhús: er U-laga með hvítum efri og neðri skápum og dökkri borðplötu. Borðpláss er í eldhúsi og gluggi snýr út að götu. Flísar eru á gólfi. 
Baðherbergi: var endurnýjað að hluta en flísar voru settar á gólf og sett nýtt baðkar með sturtuaðstöðu. Veggir eru flísalagðir sem og inn í sturtu. Viðarinnrétting með ágætis skápaplássi og vask og gólftengt klósett. Nýr gluggi er á baðherbergi með opnanlegu fagi. 
Svefnherbergi: eru þrjú mjög rúmgóð með parket á gólfi. Skápar eru í tveimur þeirra. Mikið útsýni er úr hverju herbergi. 
Háaloft: er í dag notað sem geymsluloft en hefur mikla möguleika á annarri notkun. Tveir þakgluggar eru á rýminu og góð lofthæð sem að hluta til er undir súð. 
Garður: er sameiginlegur með neðri hæð eignarinnar með sitthvorum snúrustaurnum. 
Timburpallur: er rúmgóður með skjólvegg í norður og aflokuðu geymsluplássi undir. 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.