Þjóðaskrá Íslands hefur gefið út Íbúafjölda eftir sveitarfélögum í maí 2022.

Þar má sjá að íbúum í Fjallabyggð hefur fjölgað um 6 manns frá 1. desember 2021. Eru þá íbúar Fjallabyggðar þann 1. maí 2022, 1.977 manns og mælist hækkunin 0,3%.

Þann 1. desember 2019 voru íbúar Fjallabyggðar 2.007 að tölu.

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 668 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2021 til 1. maí 2022 og íbúum Hafnarfjarðarkaupstaðar fjölgaði um 273 íbúa á sama tímabili. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á þessu tímabili um 59 íbúa og í Reykjanesbæ hefur fjölgað nokkuð hressilega á umræddu tímabili eða um 402 íbúa eða um 2%.

Fjölgar hlutfallslega mest í Skorradalshreppi
Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum Skorradalshrepps fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna fimm mánuði eða um 18,3% en íbúum þar fjölgaði um 11 íbúa.

Fækkar í tveimur landshlutum
Íbúum hefur fækkað í tveimur landshlutum á síðastliðnum fimm mánuðum. Hlutfallslega mest var fækkunin á Norðurlandi vestra eða um 0,6% sem er fækkun um 43 íbúa. Íbúum á Suðurnesjum fjölgaði um 1,7% á tímabilinu.