Íbúum í Fjallabyggð fækkaði um 14 manns frá 1. desember 2020 – 1. nóvember 2021, er það fækkun upp á 0,7%.

Íbúar eru nú 1.973, 1. desember 2020 voru 1.987 og 1. desember 2019 voru íbúar 2.007,

Á vefsíðu Þjóðskrár segir að íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 2.279 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2020 til 1. nóvember sl. eða um 1,7% og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði um 749 íbúa á sama tímabili eða um 2,0%. Á sama tímabili fjölgaði íbúum Akureyrarbæjar um 359 íbúa eða um 1,9%.
Eftirtektarverð fjölgun hefur orðið meðal íbúa í Hveragerði eða um 194 sem gerir 7,0% fjölgun frá 1. desember sl.

Hlutfallslega mest fjölgun í Helgafellssveit
Þegar horft er til alls landsins þá hefur íbúum Helgafellssveitar fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna níu mánuði eða um 21,5% en íbúum þar fjölgaði um 14 íbúa.
Næst kemur Hörgársveit með 8,6% fjölgun en íbúum í sveitarfélaginu fjölgaði um 56.

Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Eyja- og Miklaholtshreppi um 15,0%. Þá fækkaði íbúum í 20 sveitarfélögum af 69 á ofangreindu tímabili.

Fjölgun í öllum landshlutum
Íbúum fjölgaði í öllum landshlutum. Hlutfallslega var fjölgunin mest á Suðurlandi eða um 3,2% og á Suðurnesjum um 2,5%.