Árleg inflúensubólusetning hefst á næstu dögum á heilsugæslustöðvum HSN

Bóluefni gegn inflúensu er nú að berast á heilsugæslustöðvar HSN og munu bólusetningar hefjast á næstu dögum.

Nánara fyrirkomulag og hvernig tímapöntunum er háttað á hverri stöð fyrir sig verða auglýstar m.a. á undirsíðu hverrar stöðvar.

Vegna fjölgunar smita í samfélaginu eru skjólstæðingar sem mæta á heilsugæslur HSN beðnir um að vera með grímu við komu á heilsugæsluna og hafa hana á sér bæði í biðstofu og annarsstaðar innan stofnunarinnar.

Sóttvarnalæknir mælist til að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs við inflúensubólusetninu:

  • Allir einstaklingar 60 ára og eldri.
  • Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og      lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
  • Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.
  • Þungaðar konur.
        
    Vakin er athygli á því að ofangreindir áhættuhópar eiga rétt á bóluefninu sér að kostnaðarlausu en greiða þarf komugjald skv. reglugerð nr.      225/2018.

Bólusetning gegn inflúensu veitir allt að 60–70% vörn gegn sjúkdómnum. Jafnvel þótt bólusettur einstaklingur fái inflúensu eru allar líkur á því að sjúkdómurinn verði vægari en ef hann væri óbólusettur.

Að gefnu tilefni er minnt á að einstaklinga má bólusetja jafnvel þó inflúensufaraldur sé hafinn því einungis tekur um 1-2 vikur að mynda verndandi mótefni eftir bólusetningu.

Sjá ítarlegar upplýsingar hjá Embætti landlæknis