Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar um innköllun á Pestó kjúklingapasta frá Móður náttúru sem fyrirtækið Álfsaga framleiðir vegna þess að varan er vanmerkt ofnæmis- og óþolsvaldi (mjólk). Varan inniheldur  PARMESAN OST (MJÓLK) sem ekki er merktur á umbúðir vörunnar. Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit HEF (Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness) innkallað vöruna og sent út fréttatilkynningu.

Einungis er verið að innkalla eftirfarandi lotur:

  • Vörumerki: Móðir náttúra
  • Vöruheiti: Pestó kjúklingapasta
  • Framleiðandi: Álfasaga ehf.
  • Nettómagn: 390g
  • Vörunúmer: 6053
  • Strikamerki: 5694311277463
  • Lotunúmer: L 244, síðasti neysludagur 5.9.22 og L247, síðasti neysludagur 8.9.22
  • Framleiðsluland: Ísland
  • Dreifing: Krónan, Hagkaup, N1, Cornershop og Lagardere.