Ísland er aftur orðið grænt á korti sóttvarnastofnunar Evrópu, eitt Evrópuríkja. Stofnunin uppfærir á hverjum fimmtudegi kort sem sýnir nýgengi COVID-19 smita í Evrópu. Græni liturinn er til marks um að 14 daga nýgengi smita sé minna en 25 smit á hverja 100.000 íbúa.

„Þetta er ánægjulegur vitnisburður um að sóttvarnaaðgerðir hér á landi duga vel, við erum á réttri leið og síðast en ekki síst fjölgar nú jafnt og þétt í hópi bólusettra hér á landi“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.

Alls hafa nú rúmlega 95.000 einstaklingar fengið bólusetningu hér á landi og þar af eru rúmlega 28.000 fullbólulsettir.