Um helgina fer fram fyrsta túrneringin af þremur á Íslandsmóti neðri deilda í blaki.
Í Fjallabyggð verður mikið um dýrðir en alls verða spilaðir 67 leikir í báðum íþróttahúsum sveitarfélagsins. Á Ólafsfirði munu lið í 2. og 3. deild karla spila en BF á lið í 3. deild karla.
3. deild kvenna mun hins vegar etja kappi á Siglufirði og á BF lið í þeirri deild.
Á laugardeginum hefjast leikir kl 09:00 og er áætlað að síðustu leikjum ljúki um kl 17:00 á Ólafsfirði og 18:00 á Siglufirði.
Á sunnudeginum hefjast leikir kl 08:30 og áætlað að síðustu leikjum ljúki um kl 13:00.
Leikir BF liðanna eru eftirfarandi:
3. deild kvenna á Siglufirði:
- Lau kl 10:10 við Hauka
- Lau kl 12:30 við Völsung B
- Lau kl 14:50 við Álftanes D
- Lau kl 16:00 við Dímon Heklu
- Sun kl 08:30 við Aftureldingu D
- Sun kl 10:50 við Fylki B
3. deild karla á Ólafsfirði:
- Lau kl 10:10 við Hauka B
- Lau kl 12:30 við Hauka A
- Lau kl 14:50 við Eflingu-Laugaskóla
- Sun kl 08:30 við Sindra
- Sun kl 10:50 við Álftanes C
Félagið hvetur áhugasama til að kíkja í íþróttahúsin og hvetja BF liðin.
Af facebook síðu Blakfélags Fjallabyggðar