Tveir sjómenn voru heiðraðir á Siglufirði í gær í tilefni af sjómannadeginum. Það voru þeir Kristján Elías Bjarnason og Sveinn Sveinsson sem komu ásamt eiginkonum sínum, Rögnu Hannesdóttur og Björgu S Sæby Friðriksdóttur, og tóku við viðurkenningunum. Trölli.is óskar þeim innilega til hamingju.

Einnig var lagður blómsveigur að minnisvarðanum um drukknaða og týnda sjómenn á Siglufirði, Anita Elefsen hélt ræðu og sungið var lagið Siglufjörður eftir Bjarka Árnason.

Nokkur mannfjöldi mætti á Rammatúnið í fallegu veðri til að vera viðstaddur athöfnina og var það Slysavarnadeildin Vörn sem stóð fyrir athöfninni.

Meðfylgjandi myndir tók Sveinn Snævar Þorsteinsson.

Hægt er að smella á myndirnar til að sjá þær stærri.