Í kvöld halda þeir JóiPé og Króli ásamt hljómsveit tónleika á Rauðku Siglufirði.

Trölli.is birti frétt fyrir skömmu um að JóiPé er ættaður frá Siglufirði.

Siglfirski rapparinn JóiPé gerist myndlistarmaður

JóiPé og Króli fara ásamt hljómsveit í ferðalag hringinn í kringum landið og spila á fjórtán tónleikum í jafnmörgum bæjarfélögum!

Þeir félagar hafa þrátt fyrir ungan aldur gefið út fimm plötur á sex árum sem eru hver annarri ólíkari og kom sú nýjasta, Í miðjum kjarnorkuvetri, út á síðasta ári.

Lög þeirra hafa slegið hvert metið á eftir öðru í hlustunum, þeir hlotið bæði Hlustenda- og Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir verk sín og svo mætti lengi telja.

Drengirnir eru spenntir að mæta og spila öll sín bestu lög þar sem stuð og stemning verður í fyrirrúmi.

Hljómsveitina skipa ásamt JóaPé og Króla:
Hljómsveitarstjórn/Gítar: Hafsteinn Þráinsson
Bassi: Starri Snær Valdimarsson
Trommur: Ísak Emanúel Glad Róbertsson
Hljómborð/Trompet: Kári Hrafn Guðmundsson
Plötusnúður/Þeytisnælda/Munnharpa: Axel Magnús Kristjánsson