Vetrarstarf Karlakórs Fjallabyggðar hefst 18. september næstkomandi kl. 19. Fjórar kóræfingar eru að jafnaði í mánuði og framundan er spennandi starfsár hjá kórnum.
Æfingar fara fram í Tónlistarskólanum á Tröllaskaga við Aðalgötu 27 á Siglufirði. Í kórnum eru 35 söngfuglar.
Stjórnendur eru þau Edda Björk Jónsdóttir kórstjóri og Guðmann Sveinsson stjórnandi hljómsveitar kórsins.
Karlakór Fjallabyggðar auglýsir eftir áhugasömum og söng-glöðum mönnum til liðs við þann flotta hóp sem fyrir er.
Fyrir nánari upplýsingar er hægt að hafa samband á netfangið kor@kkf.is eða mæta á æfingu í létt spjall og raddprufu.
Samfélagsmiðlar kórsins:
Facebook
Instagram

Myndir/Karlakór Fjallabyggðar