Þátturinn Egg, Beikon og Bakaðar Baunir verður á dagskrá FM Trölla á morgun, föstudaginn 15. september, kl. 8.00.

Stjórnandi þáttarins er Oskar Brown og hann sendir þáttinn út í beinni útsendingu frá Stúdíói 7 á Englandi.

Það varð því miður að fella niður þáttinn í síðustu viku vegna tæknilegra örðugleika, en nú er allt komið í lag og Oskar verður á sínum stað með frábæra tónlist, helstu fréttir, helgarveðrið og ýmislegt fleira, til þess að skemmta hlustendum FM Trölla.

Endilega stillið á FM Trölla á föstudögum frá klukkan 8 til 10, þið sjáið ekki eftir því.

FM Trölli er á FM 103.7 MHz á Tröllaskaga, í Skagafirði og á Hvammstanga og nágrenni.

Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta á trolli.is, á vefsíðunni radio.garden og á tunein.com

Minnum einnig á skip.trolli.is  sem er sérstakur lágbitastraumur fyrir minni netsambönd.

Á vefsíðu FM Trölla er hægt að hlusta á upptökur af öllum þáttum sem eru á dagskrá stöðvarinnar um þessar mundir.