Á 646 fundi bæjarráðs Fjallabyggðar var lagt fram til kynningar erindi Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, SSNE, dags. 20.03.2020 til upplýsinga um þau verkefni sem samtökin eru að fást við um þessar mundir í tengslum við alvarlegt ástand sem við blasir í landshlutanum vegna COVID-19.

Einnig lagt fram til kynningar erindi stjórnar Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, SSNE, dags. 23.03.2020 til ráðherra ríkisstjórnarinnar varðandi leiðir til viðspyrnu í þeim aðstæðum sem nú eru uppi vegna COVID-19. Þar leggur stjórn til að stórauknu fjármagni verði veitt inn í Sóknaráætlun Norðurlands eystra til að mæta þeim áskorunum sem við blasa og tilgreina stór og mikilvæg verkefni sem þegar hafa verið útfærð og auðvelt er að hrinda í framkvæmd.

– Uppbygging Akureyrarflugvallar
– Hjúkrunarheimili á Húsavík
– Ný heilsugæsla á Akureyri
– Legudeild við sjúkrahúsið á Akureyri
– Átak í uppbyggingu innviða;
– Uppbygging dreifikerfis raforku
– 3ja fasa rafmagn
– Endurbætur á jarðgöngum á Tröllaskaga
– Vegur um Brekknaheiði;
– tengivegir og héraðsvegir
– Efri brú yfir Jökulsá á Fjöllum
– Ljósleiðaratengingar á svæðinu
– Draga verulega úr fjöldatakmörkunum að Háskólanum á Akureyri