Lögreglan á Norðurlandi eystra gaf út fyrir skömmu lista frá aðgerðarstjórn Almannavarna yfir fjölda þeirra sem eru í einangrun og sóttkví eftir póstnúmerum.

Segir þar að í póstnúmerinu 580, Siglufirði sé einn í einangrun og sjö í sóttkví. í póstnúmeri 625, Ólafsfirði eru fimm í sóttkví. Það eru því alls tólf í sóttkví í Fjallabyggð.

Samtals eru 33 einstaklingar með smit og 375 í sóttkví á Norðurlandi eystra.