Baldvin Ingi, sem notar listamannsnafnið B.Ingi.S gaf út sitt fyrsta lag – Þú varst! – í fyrrasumar, í tilefni af 50 ára afmæli sínu.

Nýlega kom út annað lagið frá honum, sem nefnist – Ég 50 ára nú verð – Lagið verður leikið á FM Trölla í dag, í þættinum Tíu Dropar sem er á dagskrá kl. 13 – 15 á sunnudögum.

Baldvin Ingi er ættaður frá Sauðárkróki og var í tónlist á sínum yngri árum, en tók hlé frá tónlistinni þegar hann fór í lengra nám. Sjaldan var gítarinn þó langt undan og hann lék sér við að semja lög og texta, mest fyrir skúffuna að eigin sögn.

Í seinni tíð hefur tónlistaráhuginn vaknað hjá honum á nýjan leik og lögin koma hvert á fætur öðru.

Vefsíða Baldvins Inga bingis.is

Nýja lagið, Ég 50 ára nú verð á Spotify