Styrkúhlutun tekur til eftirfarandi flokka:

1. Menningar- og samfélagsverkefni. Um er að ræða styrki til einstaklinga, þar á meðal ungs fólks, félaga eða hópa sem skara fram úr eða vinna að mikilvægum mennta- og menningarmálum á félagssvæðinu. Um er að ræða málefni á sviðum félagsmála, minjavörslu, lista og hverra þeirra málefna sem flokkast geta sem menningarmál í víðtækri merkingu. Fagráð metur umsóknir og gefur þeim einkunn. Í einkunnagjöf fagráðs felst mat á því hvaða umsóknir skulu teljast styrkhæfar.

2. Íþrótta- og æskulýðsstyrkir

a. Styrkir til ungra afreksmanna á sviði íþrótta. Í þessum flokki skulu umsækjendur vera yngri en 25 ára og búsettir á félagssvæði KEA.

b. Styrkir til íþrótta- og æskulýðsfélaga. Í þessum flokki er verið að styðja almennt við íþrótta- og æskulýðsstarf klúbba og félaga sem halda úti metnaðarfullu starfi á sínu nærsvæði, umsækjendur þurfa að vera með lögfesti á félagssvæði KEA.

3. Rannsókna-og menntastyrkir. Um er að ræða styrki til rannsóknaverkefna við menntastofnanir á félagssvæði KEA sem og stuðning við ýmis mennta-, heilbrigðis- og rannsóknartengd verkefni. Í því samhengi skal m.a. horft til samstarfsverkefna mennta- og rannsóknarstofnana sem og verkefni er kalla á bættan búnað sem eflir innviði stofnana á félagssvæðinu. 

Umsóknarfrestur rennur út 21. október fyrir alla styrki nema rannsókna- og menntastyrki, þar er umsóknarfrestur til 28. október. 

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér reglugerð sjóðsins.

Nauðsynlegt er að fylla út umsóknareyðublöð sem nálgast má hér að neðan  og skal þeim skilað rafrænt fyrir fimmtudaginn 22. október 2020 fyrir alla styrki nema rannsókna- og menntastyrki, þar þarf að skila umsóknum inn fyrir 29. október. 

Úthlutun úr sjóðnum mun fara fram 1. desember 2020.

Umsóknareyðublöð:
Menningar- og samfélagsverkefni
Íþrótta- og æskulýðsstyrkir
Ungir afreksmenn
Rannsókna- og menntastyrkir