Lögreglan á Akureyri lýsir eftir ökumanni sem ók bifreið sinni af vettvangi eftir að hafa ekið á kú í Hörgárdal við Jónasarlund á Þjóðvegi 1 rétt eftir klukkan hálf fjögur í dag.

Einnig lýsir löreglan eftir vitnum að atvikinu.

Bifreiðin sem um ræðir er hvít að lit og var á suðurleið. Ekki liggur fyrir frekari lýsing á bifreiðinni.

Ökumaður bifreiðarinnar er hvattur til að gefa sig fram eða setja sig í samband við lögregluna á Norðurlandi eystra í gegnum Neyðarlínuna, 112.

Þá eru þeir sem telja sig hafa upplýsingar um ákeyrsluna, bifreiðina eða ökumanninn beðnir um að hafa samband við lögregluna á Akureyri með sama hætti.

Mynd/pixabay