Í gær laugardaginn 1. júní tókust á knattspyrnuliðin KF í Fjallabyggð og Sindri frá Höfn í Hornafirði, kl. 15:00 á Ólafsfjarðarvelli í 5. leik íslandsmótsins.

KF hafði betur í leiknum og sigraði lið gestanna með 2-1.

Á heimasíðu KF fyrir þennan leik segir að þeir hafi byrjað tímabilið frábærlega og var liðið taplaust í efsta sæti deildarinnar með jafnmörg stig og Kórdrengir en aðeins betri markatölu.

KF vann í síðustu umferð erfiðan 0-1 sigur gegn sterku liði Skallagríms en KF hefur náð í 7 af þessum 10 stigum á útivelli sem er jafn mikið og liðið náði á útivöllum deildarinnar í fyrra.

Sindri hefur aftur á móti byrjað mótið ekkert frábærlega en komið með 4 stig og sitja í 9. sæti deildarinnar eftir 0-0 jafntefli gegn Augnablik í síðustu umferð.
Sindri féll 2017 úr 2.deild og spilaði sitt fyrsta tímabil í 3. deildinni í fyrra og lenti liðið í næst neðsta sæti sem vanalega hefði þýtt fall en vegna fjölgun liða í deildinni héldu þeir sér uppi.

KF og Sindri hafa mæst átta sinnum frá árinu 2014 og hefur Sindri haft nokkuð góð tök á KF. Sindri hefur unnið fimm af þessum leikjum, tveir þeirra hafa endað með KF sigri og einn með jafntefli.

 

Skjáskot: Úrslit.net