Vegna slæms veðurútlits í dag, þriðjudaginn 14. janúar, hefur komu sýslumanns/fulltrúa til Hvammstanga enn á ný verið frestað, nú til miðvikudagsins 15. janúar. 

Verður hefðbundin viðvera frá 13:00 – 15:00 þann dag. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.