Á vef Fjallabyggðar er fólk minnt á að hreinsa snjó frá sorptunnum, en þar segir:

Vegna mikils fannfergis undanfarið er þeim tilmælum  beint til húseigenda í Fjallabyggð að moka frá sorptunnum hjá sér fyrir sorphirðudag svo hægt sé að hirða sorp frá heimilum. Ef aðgengi að sorptunn­um er slæmt og íbú­ar hafa ekki sinnt því að greiða götu starfs­fólks sorp­hirðunn­ar, verða tunnur ekki tæmdar.

Samkvæmt sorphirðudagatali er verið er að tæma gráar tunnur á Siglufirði í  dag 14. janúar, og var líka í gær. Gráa tunnan verður svo tæmd í Ólafsfirði á morgun miðvikudaginn 15. janúar. 

Hér eru helstu ástæður fyrir því að ekki er hægt að losa tunnur:

  • Ekki búið að moka frá tunnum svo ekki er hægt að ná í þær.
  • Frosnar hurðir og ekki hægt að opna þær.
  • Frosnir lásar að sorpgeymslum, –gerðum og –skápum svo ekki er hægt að komast að tunnum.
  • Bílar fyrir sem hefta aðgengi starfsfólks og hirðubíls.

Sorphirðudagatal Fjallabyggðar, hægt er að smella á myndina til að sækja það sem pdf skjal til útprentunar: