Nýlega gaf bókaútgáfan Skriða á Hvammstanga út fyrstu tvær bækurnar, og var því fagnað með útgáfuteiti í Holti menningarsetri á Hvammstanga.
Birta Þórhallsdóttir er sjálf höfundur annarrar bókarinnar sem er safn stuttra prósa og heitir Einsamræður. Bókin á rætur að rekja til meistaranáms Birtu í ritlist auk þess sem hún fékk á sínum tíma nýræktarstyrk Íslenskrar bókmenntamiðstöðvar fyrir handritið.
Hin bókin sem fagnað var á menningarsetrinu Holti var ljóðabókin Vínbláar varir eftir Sigurbjörgu Friðriksdóttur.
Bækurnar eru mjög áþekkar í útliti en Birta vill að bækur forlagsins minni á skissubók sem skuli vísa til ákveðins hráleika innihaldsins. Birta viðurkennir að nokkuð sé um liðið síðan hún lauk endanlega við Einsamveru. Það hafi hins vegar verið henni mikilvægt að koma þessari bók frá til þess að geta haldið áfram. Sögurnar eru úr ýmsum áttum, sumar eru skrifaðar á Hvammstanga, aðrar á ferðalagi höfundar um Mexíkó og enn aðrar hafa yfirbragð þjóðlegra frásagna og minna sumar á ævintýri.
Sigurbjörg Friðriksdóttir hafði lengi vel ekki hugmynd um að ljóðið væri hennar form en svo kom það einfaldlega til hennar og árið 2016 kom ljóðabók hennar Gáttatif út hjá Meðgönguljóðum. Ljóð Sigurbjargar eru knöpp, þau fæðast hratt en eru síðan lögð til hliðar og tálguð. Þetta eru ljóð um ást, samskipti, sorg og hversdagsleika. Sigurbjörg vill ekki viðurkenna að ljóð hennar séu persónuleg, þau komi einfaldlega og hún bætir við kankvís, „eins og það sé ort í gegnum mig.“
Spunavefur
björt augu þín
daðrandi tunga
mjúkur faðmur
gljáfægðir draumar
myrk augu þín
niðrandi tunga
harður hnefi
blóðrispaðar martraðir
Skriða hyggst gefa út fleiri bækur og í farvatninu eru ljóðabók og að minnsta kosti tvær þýðingar önnur úr spænsku og hin úr rússnesku.
Myndir inni í frétt úr einkasafni
Facebook síða Skriðu bókaútgáfu