Tilkynnt hefur verið um úthlutun úr Barnamenningarsjóði Íslands fyrir árið 2024. Sjóðurinn styrkir 41 metnaðarfullt verkefni og er heildarupphæð úthlutunarinnar 102,4 milljónir króna. Alls bárust 117 umsóknir og var sótt um 383 milljónir króna. Úthlutun var tilkynnt við athöfn í Safnahúsinu á degi barnsins, sunnudaginn 26. maí 2024.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra og Guðný Hilmarsdóttir formaður stjórnar Barnamenningarsjóðs ávörpuðu gesti og greindu frá úthlutun. Kammersveit skipuð ungum listamönnum, þeim Sigrúnu Mörtu Arnaldsdóttur, Sólu Björnsdóttur og Sveindísi Eir Steinunnardóttur, lék tvö lög við góðar undirtektir.

„Það er blómlegt fram undan í barnamenningu og gleður mig ósegjanlega mikið að sjá hversu margar umsóknir bárust. Það segir okkur að efling ungra listhuga er eftirsóknarvert viðfangsefni hjá listafólkinu okkar sem lýsir metnaði fyrir skapandi framtíð landsins og það mun skila sér margfalt til baka til okkar allra. Því langar mig að þakka öllum þeim er sóttu um, fyrir hugmyndirnar og kraftinn því það er ekki alltaf auðsótt að koma hugmyndum í framkvæmd og það krefst eldmóðs sem er svo sannarlega til staðar hér,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir.

Hæsta styrkinn 11,5 milljónir, fær Reykjavíkurborg í samstarfi við Akureyrar- og Ísafjarðarbæ fyrir Leikskólaverkefnið sem byggir á samstarfi leik- og tónlistarskóla í öllum þremur sveitarfélögunum. Nemendur í tónlistarskóla vinna með elstu börnum leikskóla og lýkur verkefninu með sameiginlegum lokatónleikum. Næsthæsta styrkinn, 6 milljónir, fær Vestfjarðarstofa fyrir barnamenningahátíð Vestfjarða, Púkann 2025, en hátíðin fer fram vítt og breitt um Vestfjarðakjálkann. Þriggja manna fagráð fjallaði um umsóknirnar og menningarmálaráðherra samþykkti tillögu stjórnar sjóðsins um úthlutun.

Barnamenningarsjóður Íslands var stofnaður í tilefni aldarafmælis fullveldisins með ályktun Alþingis á hátíðarfundi 18. júlí 2018. Hlutverk sjóðsins er að fjármagna og styðja við fjölbreytta starfsemi á sviði barnamenningar með áherslu á sköpun, listir og virka þátttöku barna í menningarlífi. Í starfi sjóðsins er m.a. horft til áherslu menningarstefnu um samstarf stofnana, skóla, félagasamtaka og einstaklinga, ásamt því markmiði að jafna aðgengi barna og ungmenna að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag. Sjóðurinn var festur í sessi 23. maí 2023 með Þingsályktun um aðgerðaáætlun um eflingu barnamenningar fyrir árin 2024–2028.

Sjá nánar um verkefnin hér.

StyrkþegiHeiti verkefnisÚthlutun í kr
ReykjavíkurborgLeikskólaverkefnið   11.500.000 kr
Vestfjarðastofa ses.Púkinn 2025      6.000.000 kr
Listasafn ÍslandsStattu og vertu að steini!      5.800.000 kr
Austurbrú ses.Uppspretta      5.000.000 kr
ReykjanesbærVirkjun skapandi lista meðal barna í Reykjanesbæ      5.000.000 kr
Handbendi Brúðuleikhús ehf.Studio Handbendi      4.860.000 kr
Hringleikur – sirkuslistafélagSirkusinn og ég – Flipp Festival      4.498.000 kr
Listasafn ÁrnesingaHringrásir – list og vísindi      4.000.000 kr
ReykjavíkurborgBIG BANG tónlistarhátíð      4.000.000 kr
Afrika-Lole,áhugamannafélagFAR Fest Afríka Barnamenning 24 – 25      3.700.000 kr
Trúðavaktin, félagasamtökTrúðavaktin, íslensku sjúkrahústrúðarnir      3.665.000 kr
Dansgarðurinn, félagDansfræðsludagar – Dans fyrir alla      3.000.000 kr
Reykjavík Dance Festival.Tilfinningaskólinn      3.000.000 kr
Heimili kvikmyndanna – Bíó Paradís ses.Alþjóðleg Barnakvikmyndahátíð í Reykjavík      3.000.000 kr
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðumHvað er með ásum?      3.000.000 kr
DansverkstæðiðBarna- og fjölskyldudagskrá á Dansverkstæðinu      3.000.000 kr
Eva Rún ÞorgeirsdóttirSvakalega sögusmiðjan – raddir barna      2.820.000 kr
ReykjavíkurborgSögur – Verðlaunahátíð barnanna      2.600.000 kr
Tónlistarfélag ÁrbæjarUngir lagahöfundar – Lagasmíðabúðir í Tónhyl fyrir 16 – 18 ára      2.295.000 kr
Söngskólinn í ReykjavíkOliver! – hátíðaruppfærsla Ungdeildar Söngskólans í Reykjavík      2.000.000 kr
KópavogsbærTímamót og fögnuður. Raddir barna í Kópavogi      1.725.000 kr
Grunnskólinn á DrangsnesiGoðdalir – sviðslistasmiðja barna      1.620.000 kr
LungA-Listahátíð ungs fólks,ALLungA Ungar: Fjölskylduhátíð og listasmiðjur fyrir börn og ungmenni      1.593.000 kr
Kammerhópurinn Reykjavík-BarokkKrakkabarokk á ferð og flugi      1.500.000 kr
LanganesbyggðTungubrestur og listsköpun      1.435.000 kr
KópavogsbærFjölþjóðlegir tónleikar á Barnamenningarhátíð 2025 í Salnum.      1.340.000 kr
Minjasafn ReykjavíkurVaxtaverkir – sjónlýsingar og táknmálsleiðsögn      1.060.000 kr
Sumartónleikar SkálholtskirkjuBarnamenningarhátíð Sumartónleikanna í Skálholti      1.000.000 kr
Menningarfélagið Rebel RebelViðburðir fyrir börn á Hamraborg Festival 2024      1.000.000 kr
Listahátíð í ReykjavíkYes Yes Yes         975.000 kr
KópavogsbærTogether. Fjöltyngdar listsmiðjur fyrir börn og fjölskyldur         960.000 kr
Kol og salt ehfFURÐUVERUR Í MYRKRINU         800.000 kr
KópavogsbærBlásum lífi í þjóðsögurnar         663.000 kr
Natalia Duarte JeremiasA moment of music with Natalia         600.000 kr
Norræna húsiðHvernig tala ég um bækur?  myndlestur, samtal og fræðsla         560.000 kr
Tónskáldafélag ÍslandsLúðrasveitargjörningur á Myrkum Músíkdögum         530.000 kr
Náttúruskólinn, félagasamtökBarnamenningardagurinn         510.000 kr
FjarðabyggðFjölbreyttar listasmiðjur fyrir börn í Fjarðabyggð         500.000 kr
Eva Rún SnorradóttirBýr barn hér?         500.000 kr
Alþjóðlega tónlistarakademian í HörpuHIMA 2024         500.000 kr
Emma Louise SandersonFjallabyggð Mural project and Children’s Workshop         300.000 kr