Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur kveðið upp úrskurð og hafnað kröfu um að ógilda ákvörðun Matvælastofnunar frá 22. desember 2017 um að veita Artic Sea Farm hf. rekstrarleyfi fyrir 4.000 tonna ársframleiðslu á laxi eða regnbogasilungi í sjókvíum í Dýrafirði.

Í úrskurði sínum vísar nefndin frá kröfum Náttúruverndarsamtaka Íslands, náttúruverndarfélagsins Laxinn lifi og veiðiréttarhafa í Haffjarðará og Laxá á Ásum, þar sem þessir aðilar voru ekki taldir eiga aðild að málinu. Aðrir kærendur, sem voru einstaklingar og veiðiréttarhafar á Vestfjörðum, voru hinsvegar taldir eiga aðild að málinu á grundvelli laga um úrskurðarnefndina.

Í niðurstöðu nefndarinnar segir að útgáfa leyfisins fari ekki gegn markmiðsákvæðum laga um fiskeldi eða ákvæðum náttúruverndarlaga. Nefndin taldi að málsmeðferð stofnunarinnar við útgáfu leyfisins hafi verið í samræmi við lög sem um útgáfuna gilda.

Ítarefni má finna á vef MAST mast.is