Festa – miðstöð um samfélagsábyrgð, Stjórnvísi og Viðskiptaráð Íslands veittu í dag í annað sinn verðlaun fyrir Samfélagsskýrslu ársins.

Markmiðið með viðurkenningunni er að hvetja fyrirtæki til að setja sér mælanleg markmið og birta reglulega opinberlega, með vönduðum hætti, upplýsingar um hvernig samfélagsábyrgð og sjálfbærni í rekstri fyrirtækja skilar þeim og samfélaginu auknum ávinningi.

Í ár hlaut Isavia verðlaunin, sem voru afhend við hátíðlega athöfn í Nauthól, 13. júní.

Aðalræðumaður var Páll Harðarson forstjóri Kauphallarinnar en hann ræddi mikilvægi samfélagsábyrgðar og gerð samfélagsskýrslna fyrir samkeppniforskot fyrirtækja innanlands og á erlendum mörkuðum. „Skýr fylgni er á milli rekstrarafkomu og samfélagslegrar ábyrgðar,“ sagði Páll.

16 fyrirtæki tilnefnd

Alls bárust 29 tilnefningar um 16 fyrirtæki. Í dómnefnd voru Katrín Olga Jóhannesdóttir formaður Viðskiptaráðs Íslands, Kjartan Sigurðsson við Háskólann í Reykjavík og Jóhanna Harpa Árnadóttir, verkefnastjóri hjá Landsvirkjun, sem var jafnframt formaður dómnefndar.

Samráð, fagleg nálgun, aðgengileg og gegnsæ umfjöllun

Í mati dómnefndar kemur fram að skýrslan er unnin í samráði við hagaðila og fjölda starfsfólks Isavia, frá  öllum sviðum fyrirtækisins. Einnig var fenginn utanaðkomandi ráðgjafi til að yfirfara og tryggja gæði upplýsinganna.

Samfélagsskýrslan fylgir alþjóðlegum stöðlum GRI standards, hún er skrifuð í samræmi við árangur fyrirtækisins í að ná settum, mælanlegum markmiðum fyrir árið 2018 sem eru ennfremur tengd lengri tíma markmiðum, svo sem sjálfbærniáherslum stjórnvalda og alþjóðlegum viðmiðum: UN Global Compact, GRI, Heimsmarkmiðunum  og Air Transport Action Group.

Ábendingum um innihald skýrslunnar er fagnað af hálfu skýrsluhöfunda og þannig leitast við að tryggja stöðugar umbætur. Fjallað er um á gagnsæjan hátt hvernig til tókst að ná markmiðum, en einnig hvað gekk ekki eftir og hvernig unnið verður áfram með þau atriði.

Þá er skýrslan sett fram á myndrænan og aðgengilegan hátt, er gefin út rafrænt sem vefsíða og hana má einnig nálgast í gagnagrunni GRI í gegnum vefsíðu GRI-samtakanna.

Í niðurlagi í mati dómnefndar segir ennfremur að „með því að fylgja sérákvæðum GRI er verið að horfa sérstaklega til þeirra áskoranna og tækifæra sem flugvellir standa frammi fyrir þegar kemur að sjálfbærni.  Niðurstaða dómnefndar er að árs- og samfélagsskýrsla Ísavía sé til fyrirmyndar og hljóti viðurkenningu sem besta skýrslan árið 2019.“

Hér má finna Samfélagsskýrslu Isavia https://www.isavia.is/arsskyrsla2018

Mikil vinna liggur að baki skýrslunni

Elín Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Isavia:

„Við hjá Isavia þökkum innilega fyrir þann heiður sem okkur er sýndur með verðlaununum fyrir samfélagsskýrslu ársins. Margir úr frábærum starfsmannahópi okkar hafa lagt á sig mikla vinnu til að greina með skilmerkilegum og aðgengilegum hætti frá því sem Isavia stendur fyrir í okkar samfélagi. Þessi hópur hefur nú uppskorið ríkulega fyrir erfiði sitt og við erum þakklát, þar sem við erum öll hluti af góðu ferðalagi hvors annars.“

Forstjóri Kauphallarinnar segir skýra fylgni á milli rekstrarafkomu og samfélagslegrar ábyrgðar

Aðalfyrirlesarinn var Páll Harðarsson, forstjóri Kauphallarinnar. Páll flutti erindi með sterk skilaboð um mikilvægi þess að fyrirtæki á íslenskum markaði sem og erlendum væru með sterka sýn og ásetning um samfélagsábyrgð og sjálfbærni. Hann sagði upplýsingagjöf um framkvæmdir á slíkum ásetningi gríðarlega mikilvæga og að gögnin væru byggð á gæðum og samanburðarhæfni. Hann sagði „samfélagsleg ábyrgð, mælingar og samfélagsskýrslur geta skipt sköpum fyrir aðgengi að fjármagni. Skýr fylgni er á milli rekstrarafkomu og samfélagslegrar ábyrgðar.“ Páll sagði ennfremur að fyrirtæki sem iðkuðu samfélagsábyrgð og sjálfbærni „væru betri fjárfestingakostur til langs tíma og slíkar fjárfestingar fælu í sér minni áhættu.“