Fimmtudagskvöldið 6. desember var kveikt á jólatrénu sem rótarýklúbburinn setti upp samkvæmt hefð í kirkjugarðinum í Ólafsfirði.

Samhliða var svo kveikt á leiðiskrossunum sem klúbburinn hefur umsjón með.
Þetta er hátíðleg stund sem fjöldi bæjarbúa sækir jafnan og var þar engin undantekning á í þetta sinn.

Ave Kara settur forseti klúbbsins og stjórnandi kirkjukórsins setti athöfnina og því næst söng kirkjukórinn. Sóknarpresturinn, séra Sigríður Munda flutti stutta hugvekju og hún ásamt þremur félögum úr klúbbnum lásu úr ritningunni.

Kirkjukórinn söng í lok þessar fallegu athafnar.

Hér að neðan eru skemmtilegar myndir sem K. Haraldur Gunnlaugsson tók frá því rótarýfélagar söguðu jólatréð niður og þar til búið var að tendra á því ljósin við hátíðlega athöfn í kirkjugarðinum.

 

Haukur byrjar að saga tréð, Ásgeir Logi og Kristján fylgjast með.

 

Tréð fallið.

 

Það þurfti að snikka það til.

 

.

 

.

 

Serían hengd á innandyra í Vélsmiðju Ólafsfjarðar. Kristján og Ásgeir Logi skiptust á að hrista stigann, en K.Haraldur gnæfir yfir öðrum viðstöddum.

 

Bæjarbúar á öllum aldri mæta á ljósatendrunarstundina.

 

Það hefur ávalt gert blíðu rétt á meðan á þessum viðburði stendur, þannig var það einnig í þetta sinn.

 

Örlítill éljagangur af og til.

 

Kirkjukórinn og rótarýfélaginn Ave Kara stjórnandi kórsins.

 

Sóknarpresturinn og rótarýfélaginn, sr. Sigríður Munda.

 

Ólafsfjörður er fallega skreyttur og mikill jólabær.

 

Fjöldi bæjarbúa mætti.

 

Þegar þreytan sækir á, er gott að komast á háhest á pabba.

 

Ungviðið þarf gjarnan að hafa eitthvað fyrir stafni. Þarna varð til myndarlegur snjókarl.

 

 

Texti: K. Haraldur Gunnlaugsson/Kristín Sigurjónsdóttir
Myndir: K.Haraldur Gunnlaugsson