Þann 11. janúar næstkomandi stendur Rannís í samvinnu við SSNE fyrir hádegisverðarfundi kl. 12:00 í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Kynningum verður skipt eftir sviðum; menntasjóðir, æskulýðssjóðir, menningarsjóðir, rannsóknir og nýsköpun (Tækniþróunarsjóður og skattfrádráttur).

Kynntir verða sjóðir og innlendar, norrænar, evrópskar og alþjóðlegar styrkjaáætlanir í umsýslu Rannís, til dæmis Nordplus , Erasmus+ , Creative Europe , Tækniþróunarsjóður auk skattfrádráttar rannsókna- og þróunarverkefna.

Starfsfólk sveitarfélaga, skólar, fræðsluaðilar, menningarstofnanir, æskulýðsgeirinn, listafólk, fyrirtæki, ungmenni og öll sem áhuga hafa á alþjóðasamstarfi eru hvött til að nýta tækifærið og kynna sér fjölþætta möguleika.

Sérfræðingar Rannís verða til taks eftir kynningarnar fyrir þau sem vilja ræða möguleikana á evrópsku/alþjóðlegu samstarfi nánar.

Húsið opnar kl. 12:00 og gefst þá gestum tækifæri til að ná sér í súpu. Kynningar hefjast stuttu síðar og standa til um það bil 13:00 og þá verður gott svigrúm gefið til spurninga, þróunar á hugmyndum og svo framvegis.
Skráning: https://forms.office.com/e/htiggUnxKs