Mennta- og barnamálaráðuneytið boðar til fundaraðar um breytingar á aðalnámskrá leikskóla sem taka gildi 1. september 2023. Breytingarnar skýra nánar hlutverk leiksins sem námsleið leikskólans og hvernig meta megi með reglubundnum hætti, og með virkri þátttöku barna, viðhorf, líðan og stöðu þeirra.
Í breytingunum er jafnframt aukin umfjöllun um
- sjálfsprottinn leik barna og hann skilgreindur,
- yngstu börnin í leikskólum,
- áhrifamátt barna og trú þeirra á eigin getu (valdefling),
- jöfnun félags- og menningarlegra aðstæðna barna (inngildi),
- mikilvægi þess að tilheyra leikskólasamfélaginu (fullgildi),
- skapandi leikskólastarf með opið og sveigjanlegt skipulag þar sem fjölbreyttar námsaðferðir og leikur barna eru í forgrunni,
- hlutverk og ábyrgð leikskólakennara og starfsfólks,
- mat á námi barna í gegnum leik sem er meginnámsleið barna.
Áætlað er að breytingarnar á aðalnámskrá verði að fullu innleiddar í leikskólum landsins 1. ágúst 2024.
Björk Óttarsdóttir og Guðrún Alda Harðardóttir munu kynna helstu breytingar á eftirfarandi stöðum:
- Höfuðborgarsvæðið
Þriðjudaginn 15 ágúst kl. 15:30 í Skriðu á Menntavísindasviði Háskóla Íslands við Stakkahlíð, Reykjavík - Vesturland
Fimmtudaginn 17. ágúst kl. 15:30 á Hótel B59 við Borgarbraut, Borgarnesi - Vestfirðir
Þriðjudaginn 22 ágúst kl. 15:00 í Edinborgarhúsinu, Ísafirði - Reykjanes
Fimmtudaginn 24. ágúst kl. 15:30 í Hljómahöllinni (Bergið) í Reykjanesbæ - Suðurland
Fimmtudaginn 31. ágúst kl. 15:30 á Hótel Vatnsholti í Villingaholti, Árnessýslu - Norðurland
Miðvikudaginn 6. september kl. 15:30 í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri - Austurland
Fimmtudaginn 7. september kl. 15:30 á Hótel Héraði, Egilsstöðum - Höfuðborgarsvæðið
Þriðjudaginn 12. september kl. 15:30 á Menntavísindasviði Háskóla Íslands - Allt landið – fjarfundur á Teams
Miðvikudaginn 13. september kl. 15:30
Smelltu hér til að tengjast fundinum