Skipulagslýsing fyrir breytingu á aðalskipulagi og nýtt deiliskipulag

Dalvíkurbyggð hefur hafið vinnu við breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 og nýtt deiliskipulag vegna áforma Laxóss ehf. um uppbyggingu á athafnasvæði fyrir fiskeldisstöð norðan Hauganess.

Fyrirhugað athafnasvæði verður um 16 ha, að hluta á landfyllingu. Lagður verður aðkomuvegur, útivistarstígur og vatnslögn að svæðinu, ásamt því að gert er ráð fyrir viðlegumannvirki fyrir skip allt að 130 m á lengd. Á athafnasvæðinu verður gert ráð fyrir stórseiðaeldisstöð með 12 eldistönkum og matfiskaeldisstöð með 48 eldistönkum. Samhliða breytingu á aðalskipulagi verður unnið deiliskipulag fyrir svæðið þar sem afmarkaðar verða lóðir, byggingarreitir, götur, stígar o.s.frv.

Nú liggur fyrir skipulagslýsing þar sem fram kemur hvaða áherslur sveitarstjórn hefur við skipulagsvinnuna, upplýsingar um forsendur og fyrirliggjandi stefnu, fyrirhugað skipulagsferli og hvernig kynningu og samráði verður háttað.

Frumdrög að deiliskipulagi – sjá nánar í skipulagslýsingu

Lýsinguna má nálgast í afgreiðslu Dalvíkurbyggðar í ráðhúsi og á Skipulagsgátt: skipulagsgatt.is (mál nr. 871/2025 og 872/2025).

Skipulagslýsing.

Íbúar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að kynna sér skipulagslýsinguna og senda inn ábendingar, annað hvort með tölvupósti á dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is, bréfleiðis til framkvæmdasviðs í Ráðhúsi Dalvíkur eða í gegnum Skipulagsgátt.

Frestur til að senda inn ábendingar við skipulagslýsinguna er til 23.júlí nk.

Mynd/af vefsíðu Dalvíkurbyggðar