Í síðustu viku kom dagskrárgerðarfólk Landans frá RUV til að taka upp innslag um Trölla á Siglufirði.
Það voru þau Þórgunnur Oddsdóttir spyrill og Gunnlaugur Starri Gylfason tökumaður sem komu og tóku upp viðtöl við dagskrárgerðarmenn Trölla, þá Andra Hrannar Einarsson landsstjóra Undralandsins, bræðurna Tryggva og Júlíus Þorvaldssyni og Tíu Dropa stjórana Gunnar Smára og Kristínu Sigurjónsdóttur.
Einnig heimsóttu þau ljósmyndastúdíó KS Art, og vefinn Trölla.is sem “Tröllahjónin” eiga og reka.
Það er okkur hér á Trölla mikill heiður að fá heimsókn sem þessa og erum við þakklát fyrir innlitið.
Þáttur Landans með þessu innslagi verður væntanlega á dagskrá RUV seinnipart febrúar n.k.

Andri Hrannar Einarsson tók Þórgunni Oddsdóttir í viðtal í Undralandinu

Starri Gylfason tökumaður

Verið að ræða við Gunnar Smára útvarpsstjóra á FM Trölla

Verið að ræða við Kristínu um Trölla.is

KS Art ljósmyndastúdíó skoðað

Þórgunnur Oddsdóttir spyrill og Gunnlaugur Starri Gylfason tökumaður
Ljósmyndir: Kristín og Gunnar Smári