Í úttekt KPMG á stöðu félagslegra íbúða hjá Fjallabyggð kemur fram að núverandi leiguverð stendur ekki undir skuldsetningu íbúðasjóðs.

Einnig að leiguverð er lægra hjá Fjallabyggð en meðalleiguverð á Norðurlandi eystra sem nemur 22,8%. Er þessi samanburður án Akureyrar. Leiguverð á hvern fermetra hjá Fjallabyggð er í dag kr. 1.115.

Félagsmálanefnd leggur til við bæjarráð að leiguverð verði hækkað um 5%.

 

Frétt: Fjallabyggð
Mynd: Gunnar Smári Helgason