Helgina 9. – 11. júlí fer fram Frjó menningarhelgi í Alþýðuhúsinu á Siglufirði með þátttöku 15 listamanna.

Þetta verður í þriðja sinn sem efnt er til þverfaglegrar menningardagskrár undir yfirskriftinni Frjó, en áður var Reitir workshop haldin á þessum tíma. Dagskráin samanstendur af tónlist, myndlist, ljóðalestrum, bókverkaútgáfu og gong joga.

Dagskráin er öllum opin meðan húsrúm leyfir og verður tekið á móti frjálsum framlögum við innganginn.

Þátttakendur á Frjó eru:

Ólöf Nordal – myndlist

Eyjólfur Eyjólfsson – tónlist

Björk Níelsdóttir – tónlist

Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir – tónlist

Línus Orri Gunnarsson – tónlist

Ásgeir Ásgeirsson – tónlist

Joaquin Belart – tónlist

Þórir Hermann Óskarsson – tónlist, bókverkaútgáfa, ljóð

Ragga Gröndal – tónlist

Brák Jónsdóttir – Bókverkaútgáfa

Magnus Trygvason Eliassen – tónlist

Tumi Árnason – tónlist

Ingibjörg Elsa Turchi – tónlist

Hróðmar Sigurðsson – tónlist

Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir – gong joga

 Dagskrá á Frjó 2021

 Föstudagur 9. júlí

kl. 14.00 – Ólöf Nordal opnar sýninguna Villiljós í Kompunni.

kl. 16.30 – Þórir Hermann Óskarsson ljóðalestur í sjö hlutum: The Rime of The Ancyent Marinere (1798) eftir Samuel Taylor Coleridge. Við Bergmyndir í Garðinum við Alþýðuhúsið.

kl. 17.00 – Tónlistarhópurinn Gadus Morhua 

Björk Níelsdóttir söngur og langspil 

Eyjólfur Eyjólfsson söngur, flauta og langspil 

Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttur söngur og barokkselló.

Kl. 18.00 – Linus Orri Gunnarsson, tilraun við þjóðlagatónlist. Með honum spila Ásgeir Ásgeirsson, Joaquín Belart, Þórir Hermann Óskarsson, Ragga Gröndal.

 Laugardagur 10. júlí

kl. 14.00 – Ólöf Nordal sýnir í Kompunni.

kl. 16.30 – Brák Jónsdóttir og Þórir Hermann Óskarsson, Pieces for playing: Bókakynning og útgáfutónleikar.

kl. 20.00 – Magnus Trygvason Eliassen trommur og Tumi Árnason saxafón, tónleikar.

kl. 21.00 – Brynja Hjálmsdóttir, ljóðskáld. Okfruman.

kl. 21.30 – Ingibjörg Elsa Turchi og hljómsveit, tónleikar.

Ingibjörg Elsa Turchi – Rafbassi

Tumi Árnason – Saxófónn og elektróník

Magnús Trygvason Eliassen – Trommur

Hróðmar Sigurðsson- Rafgítar

 Sunnudagur 11. júlí

kl. 11.00 – Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir gong jóga og hugleiðsla undir berum himni í Hvanneyrarkrók (fjaran norðan við bæinn) ef veður leyfir, annars í Alþýðuhúsinu.

kl. 14.00 – Ólöf Nordal sýnir í Kompunni.

Myndir/aðsendar