Sýning Olgu Bergmann og Önnu Hallin “Innskot – Týndur tími II” opnar í Pálshúsi, Ólafsfirði, þann 13. júlí klukkan 14:00.

Sýningin byggir á athugunum þar sem tilfærsla á tíma, staðsetningu og menningu á sér stað. Óþekktir steingervingar og fornleifafundir varpa nýju ljósi á menningarlegt og jarðsögulegt samhengi hlutanna en verkið var áður sýnt í annari mynd á norræna tvíæringnum Momentum í Moss árið 2017.

Sýningin stendur til 15. september en bent er á gjaldfrjálsan aðgang á opnunardaginn.

Sjá nánar á palshusmuseum.is

 

Frétt og mynd: aðsend