Þann 17. desember voru litlu jólin haldin hátíðleg í Grunnskóla Fjallabyggðar. 

Nemendur í 1. – 5. bekk komu saman á sal og dönsuðu í kringum jólatréð. Hljómsveit skipuð Birgittu, Evu Karlottu, þær Mundína og Hólmfríður í 6 bekk, og Kristín í 5 bekk sáu um undirleik og heyrst hefur að hljómsveitin hafi slegið í gegn. Stofujól tóku við þar sem nemendur áttu góða stund með bekkjarfélögum sínum og umsjónarkennara.

Nemendur í 6. – 10. bekk sungu jólalög og voru það  Guðmann og félagar úr hljómsveitinni Ástarpungunum sem sáu um að halda uppi fjörinu. Eftir dásamlega söngstund voru veitt verðlaun fyrir piparkökuhúsakeppni, Ólympíuhlaupið og Skólahreysti.

Sjá myndir og nánari upplýsingar um verðlaunaafhendinguna hér

Sjá fleiri myndir frá litlu jólunum hér