Þjóðskrá hefur gefið fjölda íbúa eftir sveitarfélögum 1. júní 2023.

Íbúum í Fjallabyggð hefur fjölgað um 30 íbúa frá 1. des 2022.

Þann 1. júní 2023 voru 2.007 íbúar búsettir í sveitarfélaginu, 1. des. 2022 voru þeir 1.977 og nemur fjölgunin 1,5 %.

Íbúar Fjallabyggðar orðnir 2000

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 2.041 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2022 til 1. júní 2023 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 294 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 136 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fjölgað um 945 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 241 íbúa.

Fjölgar hlutfallslega mest í Eyja- og Miklaholtshreppi

Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum í Eyja- og Miklaholtshreppi fjölgað hlutfallslega mest frá 1. desember 2022 um 7,1% en íbúum þar fjölgaði um 8 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Skorradalshreppi eða 6,9% en þar fjölgaði íbúum um 4 einstaklinga frá 1. desember 2022.  Af 64 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 8 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 56 sveitarfélögum.

Fjölgar eða stendur í stað í öllum landshlutum

Íbúum fjölgar eða stendur í stað í öllum landshlutum miðað við 1. desember 2022. Hlutfallslega mest hefur fjölgunin verið á Suðurnesjum eða um 3,7% sem er fjölgun um 1.143 íbúa. Samtals fjölgar íbúum á landinu öllu um 5.800 frá 1. desember 2022 til. 1. júní 2023 sem er um 1,5%.