Árlegi fótboltaleikurinn, starfsfólk á móti 7. bekk í Grunnskóla Fjallabyggðar fór fram miðvikudaginn 19.maí.

Á vefsíðu Grunnskóla Fjallabyggðar segir að þetta hafi verið erfiður leikur fyrir starfsmenn enda andstæðingarnir hörku spilarar.

Leikurinn endaði 1 – 0 fyrir starfsfólki, en það var hún Adda María sem skoraði í seinni hálfleik.

Birgitta Þorsteins átti dauðafæri sem hún klúðraði alveg algjörlega, Sunna Björg var ótrúlega öflug enda uppalin í boltanum.

Silla Gutta var valin leikmaður dagsins þar sem hún hélt hreinu marki, þrátt fyrir endalaus dauðafæri hjá 7. bekk.

Nemendur í 7. bekk stóðu sig ótrúlega vel og enginn slasaðist.